SkyWatcher Explorer-130

Athugaðu, opna í nýjum glugga. Skoða sem PDF skjalPrenta útSenda hlekk á þessa síðu til vinar

Verð kr.: 69.900 ,-
Hvar get ég skoðað og keypt sjónaukann?

Mjög góður byrjendasjónauki sem er nokkuð einfaldur í uppsetningu og mjög meðfærilegur. Þessi sjónauki hentar vel fullorðnum áhugamönnum en fyrir yngsta áhugafólkið ættir þú tvímælalaust að skoða SkyWatcher Heritage 76 eða SkyWatcher Skyliner 150P Dobsonsjónauka.

SkyWatcher Explorer-130 er mjög góður til að skoða tunglið vel, reikistjörnur og djúpfyrirbæri. Með sjónaukanum er auðvelt að sjá tungl og skýjabelti Júpíters og hringa Satúrnusar. Með honum fylgja tvö góð augngler, Barlow linsa og góður miðari.

Ef þú vilt skoða djúpfyrirbæri eins og stjörnuþokur, stjörnuþyrpingar og vetrarbrautir mælum við með stærri spegilsjónaukum, sér í lagi SkyWatcher Skyliner-150P eða Skyliner-200P, sem fá okkar mestu meðmæli.

  • Tegund: Newton spegilsjónauki
  • Stæði: Þýskt-pólstillt (EQ)
  • Ljósop: 130mm
  • Brennivídd: 900mm
  • Brennihlutfall: f/6,9
  • Mesta gagnlega stækkun: 260x
  • Safnar 30% meira ljósi en 114mm sjónauki
  • Fugla- og útsýnisskoðun: Nei
  • Stjörnuljósmyndun: Nei

Hvað fylgir með í pakkanum?

  • Þrífótur
  • 25mm augngler (36x stækkun)
  • 10mm augngler (90x stækkun)
  • 2x Barlow linsa
  • Miðari
  • Tveggja ára ábyrgð

Hvar get ég skoðað og keypt sjónaukann?

Þú getur keypt SkyWatcher Explorer-130 hjá þessum aðilum:

Rafland
Síðumúla 2-4, Reykjavík, S: 520-7900
Sjonaukar.is
Hafnarfjörður, Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
  • Geisli - Vestmannaeyjum(Sími: 481-3333)
  • Ljósgjafinn - Akureyri
  • Framköllunarþjónustan - Borgarnesi(Sími: 437-1055)
  • K.F Skagfirðinga - Sauðarkrók(Sími: 455-4500)
  • Húsgagnaval - Höfn(Sími: 478-2535)

 

Þarf ég eitthvað fleira?

Mikilvægt er að eignast góða fylgihluti með Explorer-130 til að fá sem mest út úr sjónaukanum. Góðir fylgihlutir gera nefnilega góðan sjónauka enn betri og stjörnuskoðunina ánægjulegri. Hér eru nokkrir fylgihlutir sem við mælum sérstaklega með fyrir Explorer-130:

  • 15mm augngler (60x stækkun)
  • 12,5mm augngler (72x stækkun)
  • 7,5mm augngler (120x stækkun)
  • 6mm augngler (150x stækkun)
  • Tunglsía