SkyWatcher Heritage 76
Vilt þú sjá það sem Galíleó sá og miklu meira?
Eitt mikilvægasta markmið Alþjóðlegs árs stjörnufræðinnar er að veita öllum, sérstaklega börnum, auðvelt aðgengi að stjörnuhimninum með hjálp ódýrra stjörnusjónauka. Þannig má hjálpa börnum og öðru áhugafólki að öðlast grunnskilning á alheiminum. SkyWatcher Heritage 76 var útbúinn sérstaklega í tilefni af ári stjörnufræðinnar.
SkyWatcher Heritage 76 sjónaukinn er einstaklega meðfærilegur. Þetta er 76mm spegilsjónauki á Dobsonstæði sem er sáraeinfaldur í notkun.
Með kaupum á sjónaukanum frá okkur eða söluaðilum okkar styrkir þú starfsemi Stjörnuskoðunarfélags Seltjarnarness og Stjörnufræðivefsins. Þinn stuðningur er ómetanlegur. Með honum eflum við áhuga á vísindum á Íslandi.
Með sjónaukanum fylgir:
- 5x24 leitarsjónauki
- 25mm augngler (12x stækkun)
- 10mm augngler (30x stækkun)
- Tímaritið Undur alheimsins
- Fræðslumyndin Horft til himins á DVD með íslenskum texta
SkyWatcher Heritage 76 sjónaukinn hefur nokkra kosti umfram t.d. 70mm linsusjónauka. Hann er mun meðfærilegri og einfaldari í notkun. Hann hefur víðara sjónsvið og örlítið stærra ljósop. Auk þess fylgja honum fín augngler og góður leitarsjónauki.
Stjörnufræðivefurinn og Stjörnuskoðunarfélag Seltjarnarness mæla sérstaklega með þessum fína byrjendasjónauka.
- Tegund: Dobson spegilsjónauki
- Ljósop: 3 tommur (76mm)
- Brennivídd: 300mm
- Brennihlutfall: f/3,95
Í hnotskurn:
- Útnefndur opinber vara Alþjóðlegs árs stjörnufræðinnar 2009.
- 76mm spegilsjónauki á hágæða Dobsonstæði gerir hann að framúrskarandi byrjendasjónauka
- Sérstaklega meðfærilegur og fisléttur sjónauki sem auðvelt er að geyma, flytja milli staða og setja upp.
- Mjög einfalt að skoða stjörnuhiminninn með honum. Sjáðu gígana á tunglinu, hringa Satúrnusar og Galíleótunglin umhverfis Júpíter.
- Góður stjörnusjónauki fyrir byrjendur í stjörnuskoðun sem er einfaldur í notkun.
** ATH! Sjónaukinn fæst eingöngu hjá söluaðilum okkar.
Þarf ég eitthvað fleira?
Við mælum með því að þú eignist fleiri augngler fyrir sjónaukann.
Söluaðilar:
SkyWatcher Heritage 76 fæst aðeins hjá þessum aðilum:
![]() | |
| Sjónvarpsmiðstöðin Síðumúla 2, Reykjavík, S: 568-9090 | A4 Skrifstofa og skóli |
- Geisli - Vestmannaeyjum(Sími: 481-3333)
- Pedromyndir - Akureyri(Sími: 462-3520)
- Framköllunarþjónustan - Borgarnesi(Sími: 437-1055)
- K.F Skagfirðinga - Sauðarkrók(Sími: 455-4500)
- Húsgagnaval - Höfn(Sími: 478-2535)





