SkyWatcher Skyliner 250P - 10" Dobsonsjónauki

Prenta út

Verð kr.: 149.900,-
Panta

Hreint út sagt frábær stjörnusjónauki fyrir byrjendur og lengra komna en sér í lagi unga stjörnuáhugamenn. Sjónaukinn er sáraeinfaldur í notkun og ótrúlega meðfærilegur þrátt fyrir að hafa 10 tommu ljósop. Þetta er einfaldlega einn allra besti byrjandasjónaukinn sem völ er á, sérstaklega þegar mið er tekið af verðinu.

Með þessum frábæra byrjandasjónauka sérðu bjartar og skarpar myndir af tunglinu og reikistjörnunum. Auðvelt er að sjá tungl og skýjabelti Júpíters og stórbrotið hringakerfi Satúrnusar og fín smáatriði á Mars á borð við pólhettur, ský og dökk- og ljósleit svæði og jafnvel sjálft Ólympusfjall!

Djúpfyrirbæri eins og stjörnuþokur, stjörnuþyrpingar og vetrarbrautir sjást sérstaklega vel með þessum sjónauka þar sem hann hefur nokkuð stórt ljósop.

Stjörnuskoðunarfélag Seltjarnarness og Stjörnufræðivefurinn mæla sérstaklega með þessum frábæra byrjandasjónauka.

Hvað fylgir með?

Þarf ég eitthvað fleira?

Við mælum alltaf með því að fólk eignist góða fylgihluti fyrir sjónaukann sinn. Hér eru nokkrir sem við mælum með:

Augngler og aðrir fylgihlutir