Í kennslustofuna

Athugaðu, opna í nýjum glugga. Skoða sem PDF skjalPrenta útSenda hlekk á þessa síðu til vinar

Educam gerir þér kleift að virkja allar tölvur, snjallsíma og spjaldtölvur í kennslustofunni og koma námsefninu til allra nemanda samstundis á einfaldan og öruggan hátt. Notendur geta skoðað, tekið myndir og deilt lifandi myndum úr skjalamyndavélinni eða stafrænni smásjá. Educam forritið vinnur eingöngu með Ken-A-Vision stafrænum vörum.

Ken-A-Vision nýtur aðstoðar náttúrufræðikennara við að hanna og þróa skjalamyndavélar og smásjár sem hafa ekki aðeins frábær myndgæði, heldur eru líka hugsaðar til að vera einfaldar og þægilegar í notkun, útbúnar nýjustu tækni og vönduðum linsum.

Ken-A-Vision hefur framleitt hágæða smásjár í yfir 60 ár. Fyrirtækið býður upp á breiða línu fyrir ólíkar þarfir. Á sama hátt og kennslustofan hefur tekið breytingum vinnur Ken-A-Vision stöðugt að því að betrumbæta vörur sínar eftir þörfum kennara og með aðstoð kennara bæði í Bandaríkjunum og Evrópu. Ken-A-Vision eru framleiddar í Bandaríkjunum.

Hugbúnaður og vörur Ken-A-Vision færa skapandi nám í alla kennslustofuna.

7890UM/7880 Vision Viewer

Ken-A-Vision býður upp á einfalda og þægilega stafræna skjalamyndavélar. Þú einfaldlega tengir einn kapal í USB tengið í tölvunni og ræsir Applied Vision ™ 4 hugbúnaðinn! Með Ken-A-Vision er auðvelt að taka myndir og kvikmyndir og senda í allar tölvur í skólastofunni eða varpa á tjald með skjávarpa. Engir takkar en þú notar tölvumúsina til að stýra. 7880 Auto Focus Vision Viewer ™ og 7890UM Digital Vision Viewer ™ skilar mynd í háskerpumyndgæðum í rauntíma. Traustur og sveigjanlegur háls. Framleitt í Bandaríkjunum.

 

 

 

 

 

T-17541C Digital Monocular Microscope

T-17541C hefur innbyggða stafræna myndavél sem gerir notandanum kleift að varpa myndinni á skjá, taka ljósmyndir eða myndskeið og vinna með myndefnið í tölvunni en um leið horfa í gegn á hefðbundinn hátt. Applied Vision™ 4 forritið fylgir. Gæða smásjár á viðráðanlegu verði fyrir skóla. Hönnuð til notkunar í kennslustofu.

  • Raka- og móðuvarin sjóngler
  • Augngler stækkar 10x
  • Fjórar linsur, 4x, 10x, 40x og 100x
  • Aðlögun ± 0.20x fyrir fólk með ólíka sjón
  • Innbyggð 5 milljón pixla myndavél
  • Birtustillir
  • Stillanleg LED lýsing
  • Álumgjörð
  • Applied Vision™ 4 forritið virkar á Windows, Macintosh og Linux OS.

 

 

 

T-1050

T-1050 er eina smásjáin sem gerir kennara kleift að streyma myndir í snjallsíma og spjaldtölvur nemenda.

T-1050 sameinar smásjá, víðsjá og handsjá í eitt og sama tækið, þú grannskoðar viðfangsefnið á tölvuskjánum. Síðan má vista það og jafnvel senda beint í vefpósti. Einnig er hægt að varpa myndefninu á tjald með skjávarpa á fundum eða í kennslustund. Sérstaklega hönnuð fyrir skólabekkinn.

  • Upplausn: 640x480 punktar
  • Stækkun: 20x~40x, 100x
  • Mynd
  • Video
  • Time-lapse