Orion Stratus augngler

Athugaðu, opna í nýjum glugga. Skoða sem PDF skjalPrenta útSenda hlekk á þessa síðu til vinar

 
Sérpantað. Hafðu samband til að fá besta verð.

Hreint frábær augngler með vítt sjónsvið sem henta öllum tegundum stjörnusjónauka. Orion Stratus glerin eru einnig hnífskörp og mjög tær. Eins er mjög þægilegt að horfa í gegnum þau. Við mælum sérstaklega með 24mm aunglerinu sem gefur sama sjónsvið og 32mm plössl augngler, en meiri stækkun sem þýðir að myndin fær betri skerpu eða kontrast. Himinninn í bakgrunni verður svartari svo einfaldar er að sjá dauf fyrirbæri í forgrunni. 24mm augnglerið er einfaldlega frábært! 

Ef þú ert að leita að meiri stækkun ættir þú að skoða 8mm, 5mm eða 3,5mm aunglerin. 

Brennivíddir í boði:
  • 24mm
  • 21mm
  • 17mm
  • 13mm
  • 8mm
  • 5mm
  • 3,5mm