12,5mm, 6mm og 3mm SPL augngler

Athugaðu, opna í nýjum glugga. Skoða sem PDF skjalPrenta útSenda hlekk á þessa síðu til vinar

Verð kr.: 14.900 stk
Verð kr.:

Hágæða augngler frá William Optics, sérstaklega hugsuð í tungl- og reikistjörnuskoðun. Þessi frábæru augngler eru hugsuð til þess að ná mikilli stækkun en halda engu að síður góðri birtu og skerpu í myndinni. Augnglerin hafa langa augnfró sem þýðir að þau henta gleraugnanotendum mjög vel en einnig að mjög þægilegt er að horfa í gegnum þau. Bæði er hægt að kaup augnglerin stök eða þrjú saman. SPL augnglerin henta vel í allar tegundir stjörnusjónauka.

  • Brennivídd: 12,5mm, 6mm og 3mm
  • Stærð: 1,25"
  • Sýndarsjónsvið: 55°
  • Augnfró: 20mm
  • Þyngd: 200 g (12,5mm) og 150 g (6mm og 3mm)