Merlin

Prenta út


Verð: 44.990.-

Merlin lóðstillta sjónaukastæðið er einfalt, stöðugt og samtímis afar meðfærilegt. Auðvelt er að festa þrífót undir og nýta drifið í ýmsa stjörnuljósmyndun. Stæðið ber allt að 4 kg. Tengja má myndavél, stjörnusjónauka eða myndbandstökuvél við það. Með fjarstýringunni má beina sjónaukanum eða myndavélinni hvert sem er á næturhimininn og láta drifið fylgja hreyfingu stjarna! Tölvubúnaðurinn geymir í minni 42.900 stjarnfyrirbæri. Merlin lóðstillta sjónaukastæðið hentar því stjörnuáhugafólki bæði með mikla eða litla reynslu af stjörnuskoðun.

Upplýsingar