16mm UWAN (1,25")

Athugaðu, opna í nýjum glugga. Skoða sem PDF skjalPrenta útSenda hlekk á þessa síðu til vinar

Verð kr.: Hafðu samband fyrir besta verð

UWAN gleiðlinsurnar eru vönduðust augnglerin frá William Optics og einnig ein vönduðustu augnglerin sem völ er á. Þetta frábæra augngler hentar sérstaklega vel fyrir allar tegundir stjörnusjónauka, en sér í lagi handstýrða sjónauka þar sem sjónsviðið er mjög vítt sjónsvið (82°). Augnglerið er þannig kjörið til að skoða víð fyrirbæri á borð við stjörnuþokur, lausþyrpingar og jafnvel vetrarbrautir, en hentar einnig ákaflega vel til reikistjörnuskoðunar, þótt flestir myndu sennilega vilja meiri stækkun eins og 7mm UWAN og 4mm UWAN gefa.

  • Tegund: Gleiðlinsa
  • Stærð: 1,25 tommur
  • Brennivídd: 16mm
  • Sýndarsjónsvið: 82°
  • Augnfró: 12mm
  • Þyngd: 200 g