C6 SGT XLT

Athugaðu, opna í nýjum glugga. Skoða sem PDF skjalPrenta útSenda hlekk á þessa síðu til vinar

Verð kr.:

C6 SGT XLT

Með þessum flotta sjónauka sérðu bjartar og mjög skarpar myndir af tunglinu og reikistjörnunum. Auðvelt er að sjá tungl og skýjabelti Júpíters og stórbrotið hringakerfi Satúrnusar. Ef þú vilt skoða djúpfyrirbæri eins og stjörnuþokur, stjörnuþyrpingar og vetrarbrautir mælum við hiklaust með stærri spegilsjónaukum, svo sem NexStar 8SE, C8 XLT SGT eða jafnvel Orion SkyQuest XT10 IntelliScope sem fá okkar mestu meðmæli, þótt C6 SGT XLT virki líka mjög vel í þess háttar stjörnuskoðun.

  • Tegund: Schmidt-Cassegrain
  • Stæði: Þýskt pólstillt (CG-5 EQ)
  • Ljósop: 150mm (6 tommur)
  • Brennivídd: 1500mm
  • Brennihlutfall: f/10
  • Mesta gagnlega stækkun: 300x
  • Fugla- og útsýnisskoðun: Nei
  • Stjörnuljósmyndun: Já

Hvað fylgir með í pakkanum?

  • Allt sem þú sérð á myndinni, það er
  • Þrífótur
  • 25mm augngler (60x stækkun)
  • 6x30 leitarsjónauki
  • Tveggja ára ábyrgð

Þarf ég eitthvað fleira?

Mjög mikilvægt er að eignast góða fylgihluti með C6 SGT XLT til að fá sem mest út úr sjónaukanum. Góðir fylgihlutir gera nefnilega góðan sjónauka enn betri og stjörnuskoðunina ánægjulegri. 

Hér eru nokkrir fylgihlutir sem við mælum sérstaklega með fyrir C6 SGT XLT.