NexStar 4SE

Prenta út

Verð kr.:

Hver segir að stjörnuskoðun þurfi að vera flókin? Með NexStar SE línunni er stjörnuskoðun gerð sáraeinföld með frábærum stjörnusjónaukum á enn betra verði.

NexStar SE línan samanstendur af fjórum hágæða stjörnusjónaukum; einum Maksutov-Cassegrain og þremur Schmidt-Cassegrain sjónaukum. Allir sjónaukarnir eru á rafdrifnu og tölvustýrðu hálfu gaffalsstæði sem er bæði sáraeinfalt í notkun, einstaklega þægilegt og ótrúlega notadrjúgt. Sjónaukarnir eru allir sérstaklega meðfærilegir!

Allir NexStar SE sjónaukarnir hafa StarBright XLT húðun sem tryggir mjög bjarta og hnífskarpa mynd.

Allir sjónaukarnir eru tölvustýrðir sem auðveldar manni mjög að finna dauf fyrirbæri á himninum og að fylgja eftir hreyfingum stjarnanna. Sjónaukinn þarfnast átta AA rafhlaðna en hægt er að kaupa aflstöð til að spara sér rafhlöðukostnað.

Með sjónaukanum fylgir lítil fjarstýring sem tengd er við sjónaukann og sér um að finna fyrirbærin með þinni hjálp. Með því að smella á einn hnapp getur þú valið um fyrirbæri á himninum, skoðað upplýsingar um fyrirbæri eða einfaldlega komist að því hvort fyrirbæri sé sýnilegt á himninum yfir Íslandi eða ekki.

SkyAlign tæknin auðveldar mjög stjörnuskoðunina. Með því að slá inn dagsetningu, tíma og staðsetningu (lengdar- og breiddargráðu þína) í fjarstýringuna, beinist sjónaukinn að þremur björtum fyrirbærum á himninum. Þú þarft ekkert endilega að þekkja nöfn þeirra – þú getur jafnvel valið tunglið eða bjartar reikistjörnur.

SkyAlign er einfaldasta aðferðin til að stilla tölvustýrðan sjónauka; hún er frábær fyrir byrjendur því hún er bæði þægileg og nákvæm, eins og reyndari notendur krefjast.

NexStar 4SE er hægt að nota í bæði stjörnuskoðun og útsýnisskoðun.

Með þessum flotta sjónauka sérðu bjartar og mjög skarpar myndir af tunglinu og reikistjörnunum. Auðvelt er að sjá tungl og skýjabelti Júpíters og stórbrotið hringakerfi Satúrnusar. Ef þú vilt skoða djúpfyrirbæri eins og stjörnuþokur, stjörnuþyrpingar og vetrarbrautir mælum við hiklaust með stærri spegilsjónaukum, svo sem NexStar 6 eða 8SE eða jafnvel Orion SkyQuest XT8 IntelliScope sem fá okkar mestu meðmæli.

Hvað fylgir með í pakkanum?

Þarf ég eitthvað fleira?

Mjög mikilvægt er að eignast góða fylgihluti með NexStar 4SE til að fá sem mest út úr sjónaukanum. Góðir fylgihlutir gera nefnilega góðan sjónauka enn betri og stjörnuskoðunina ánægjulegri. 

Hér eru nokkrir fylgihlutir sem við mælum sérstaklega með fyrir NexStar 4SE.