FLT 158 Triplet APO

Prenta út

Verð kr.:  Hafðu samband fyrir besta verð.

FLT 158 Triplet APO er án nokkurs vafa einn allra vandaðasti linsusjónaukinn á markaðnum í sínum stærðarflokki. Í honum eru þrjár lithreinar (APO) LZOS OK-4 linsur frá Rússlandi, sérhannaðar fyrir William Optics. Þessar frábæru linsur skila kristaltærri, hnífskarpri og bjartri mynd án nokkurrar bjögunar. Sjónaukinn er fullkomlega lithreinn sem tryggir bestu mögulegu útkomu í stjörnuljósmyndun.

Fókusinn er geysisterkur og sígur ekki þrátt fyrir að þungum myndavélum sé komið fyrir á hann, en er um leið alltaf silkimjúkur. Fókusnum er hægt að snúa 360 gráður og hefur auk þess 1:10 fínfókushnapp fyrir hárfína fókusstillingu sem er vitaskuld nauðsynleg í stjörnuljósmyndun.

Hvað er innifalið í verði?

Þarf ég eitthvað fleira?

  

Losmandy G11 þýskt sjónaukastæði

Rafdrifið þýskt sjónaukastæði sem hægt er að tengja við tölvu er nauðsynlegt ef taka á góðar stjörnuljósmyndir með FLT 132 Triplet APO. G11 þýska sjónaukastæðið frá Losmandy er meðal bestu sjónaukastæða sem völ er á í sínum verðflokki.

Sjá nánar.

William Optics 2" Dielectric skáspegill

Tveggja tommu skáspegill með 99% endurvarpi skilar bjartri og skarpri mynd úr sjónaukanum upp í augnglerið.

Sjá nánar.

William Optics UWAN augngler

Hágæða augngler með 82° sýndarsjónsviði og hnífskarpri mynd.

Sjá nánar.

  

Myndir

Stjörnuljósmyndir teknar með FLT 158 Triplet APO