|  | 
| Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. | 
Frábær  stjörnusjónauki fyrir byrjendur og lengra komna sem hugsa stórt! Sjónaukinn er  sáraeinfaldur í notkun en nokkuð umfangsmikill en engu að síður nokkuð  meðfærilegur. Erfitt er að finna jafn stóran sjónauka sem sýnir manni jafn  margt á himinhvolfinu á betra verði! Þetta  er einfaldlega einn allra besti stóri byrjandasjónaukinn sem völ er á,  sérstaklega þegar mið er tekið af verðinu.
 Með  sjónaukanum fylgir IntelliScope tölvustýring sem hjálpar þér við að  staðsetja 42.900 fyrirbæra á himninum sjálfvirkt. IntelliScope er sáraeinfalt í  notkun en leiðbeiningar um notkun þess er að finna hér.  
 Með  þessum frábæra sjónauka sérðu bjartar og skarpar myndir af tunglinu og reikistjörnunum.  Sáraeinfalt er að sjá tungl og skýjabelti Júpíters og stórbrotið hringakerfi og  nokkur tungl Satúrnusar, Úranus og nokkur tungl hans og mjög fín smáatriði á  Mars á borð við pólhettur, ský og dökk- og ljósleit svæði og jafnvel sjálft  Ólympusfjall! 
 Djúpfyrirbæri  eins og stjörnuþokur, stjörnuþyrpingar og vetrarbrautir sjást einstaklega vel  með þessum sjónauka þar sem hann hefur stórt ljósop. Stjörnuskoðunarfélag  Seltjarnarness og Stjörnufræðivefurinn mæla sérstaklega með þessum frábæra sjónauka. 
Hvað fylgir með?