Explorer-130P

Prenta út

Verð kr.: 99.900,-
Panta

Sjónaukarnir úr Explorer línunni frá Skywatcher eru frábærir sjónaukar fyrir alla stjörnuáhugamenn. Sjónaukarnir hvíla á hálfu gaffalsstæði sem er bæði mjög traust og stöðugt og auk þess sáraeinfalt í uppsetningu og notkun. Allir sjónaukarnir eru tölvustýrðir sem auðveldar manni mjög að finna dauf fyrirbæri á himninum og að fylgja eftir hreyfingum stjarnanna. Sjónaukinn þarfnast átta AA rafhlaðna en hægt er að kaupa aflstöð til að spara sér rafhlöðukostnað.
Með sjónaukanum fylgir lítil fjarstýring sem tengd er við sjónaukann og sér um að finna fyrirbærin með þinni hjálp. Með því að smella á einn hnapp getur þú valið um fyrirbæri á himninum, skoðað upplýsingar um fyrirbæri eða einfaldlega komist að því hvort fyrirbæri sé sýnilegt á himninum yfir Íslandi eða ekki.
SkyAlign tæknin auðveldar mjög stjörnuskoðunina. Með því að slá inn dagsetningu, tíma og staðsetningu (lengdar- og breiddargráðu þína) í fjarstýringuna, beinist sjónaukinn að þremur björtum fyrirbærum á himninum. Þú þarft ekkert endilega að þekkja nöfn þeirra – þú getur jafnvel valið tunglið eða bjartar reikistjörnur.
SkyAlign er einfaldasta aðferðin til að stilla tölvustýrðan sjónauka; hún er frábær fyrir byrjendur því hún er bæði þægileg og nákvæm, eins og reyndari notendur krefjast.
EXPLORER-130P er eingöngu hugsaður í stjörnuskoðun.
Með þessum fína sjónauka sérðu bjartar og skarpar myndir af tunglinu og reikistjörnunum. Auðvelt er að sjá tungl og skýjabelti Júpíters og stórbrotið hringakerfi Satúrnusar. Eins ef þú vilt skoða djúpfyrirbæri eins og stjörnuþokur, stjörnuþyrpingar og vetrarbrautir. Bestu kostirnir er Skyliner P150 eða P200 sem fá okkur mestu meðmæli.

Hvað fylgir með í pakkanum?

Þarf ég eitthvað fleira?
Mjög mikilvægt er að eignast góða fylgihluti til að fá sem mest út úr sjónaukanum. Góðir fylgihlutir gera nefnilega góðan sjónauka enn betri og stjörnuskoðunina ánægjulegri.


"Its sharp optics and relatively small central obstruction ensure s that it delivers bright, diffraction-limited images….can view a true field in excess of 2°….will give you memorable views of the Moon and bright planets…In short, it’s a great all-rounder in its class"
Ade Ashford, www.scopetest.com

"I was most impressed by the views revealed by the ‘scope during tests….Despite a phase of nearly 96 percent, the waxing gibbous Moon revealed a seemingly inexhaustible amount of fine detail"
Astronomy Now Magazine