Flip Video

Athugaðu, opna í nýjum glugga. Skoða sem PDF skjalPrenta útSenda hlekk á þessa síðu til vinar


Verð: 29.990 kr.

 

Kynning á Flip Mino

Frá sama framleiðanda og færði okkur Flip Video Ultra kemur Mino sem kemst auðveldlega fyrir í vasanum þínum. Þessi örsmáa upptökuvél gerir alla upptöku eins einfalda og mögulegt er án þess að gæðin glatist. Með Mino getur þú deilt hágæða myndskeiðum með vinum þínum hvar sem er, hvenær sem er. Á henni er USB tengi svo auðvelt er að tengja hana við tölvu. Hugbúnaður fylgir með. Mino gerir þér einnig kleift að skoða, klippa og senda myndskeið á vinsælar myndskeiðssíður samstundis. Mino er afar fyrirferðalítil, handhægt og sáraeinfalt í notkun. Í Mino er endurhlaðanleg rafhlaða sem hleðst um leið og það er sett í samband við tölvu eða rafmagnsinnstungu.

Flip Mino

Mino er með innbyggt 2 GB minni og tekur upp 60 mínútur af myndefni. Einfaldur klippi og hugbúnaður, USB-tengi, einnar snertingar upptökuhnappur. Mino, vegur aðeins 90 g, eins er skjárin 1.5” Mino er hugsaður fyrir þann sem vill fyrirferðalitla, einfalda, en góða upptökuvél, með þeim möguleikum sem fólk þarf. Innbyggður Flipshare hugbúnaður
Mino kemur útbúinn með FlipShare hugbúnaði

FlipShare leyfir þér að:

  • Geyma og skipuleggja: Horfðu á myndskeiðin þín á tölvunni þinni hvenær sem þú vilt og útbúðu eigin möppur til að raða myndskeiðunum skipulega. Einnig getur þú notað sjálfvirkt flokkunarkerfi.
  • Gefa út á netinu: Sendu myndskeiðin þín samstundis á Youtube, MySpace, AOL Video og fjölmargar aðrar síður. Það hefur aldrei verið svona auðvelt að setja á netið!
  • Sendu myndskeiðin: Sendu myndskeiðin þín til vina og fjölskyldu með fjölmörgum persónulegum kveðjum.
  • Klippa og útbúa myndir: Klipptu myndskeiðin þín og búðu til þín eigin. Bættu inn uppáhalds tónlistinni þinni. FlipShare leyfir þér líka að taka stillimyndir úr myndböndunum þínum.               

Tæknilegar upplýsingar:

  • Mynd: VGA, 30 rammar á sek, MPEG4
  • 1.5 “ lita LCD skár til að skoða og eyða myndböndum.
  • Myndgæði sambærileg við dýrari upptökuvélar
  • 2x stafrænn aðdráttur.
  • RCA-tengi til að tengja beind við sjónvarp.
  • Tengjanlegt við tölvuna með USB.
  • 2 GB innbyggt minni.
  • Innbyggð endurhlaðanleg rafhlaða (liþíum). Hlaðanleg bæði í gegnum USB og/eða hleðslutæki.

Myndir: