Ferrari ZenithStar Racing

Athugaðu, opna í nýjum glugga. Skoða sem PDF skjalPrenta útSenda hlekk á þessa síðu til vinar

Verð kr.: 149.900.-

Ferrari ZenithStar Racing er glæsilegur lithreinn (APO) linsusjónauki úr smiðju William Optics. Sjónaukinn er hugsaður í allt, hvort sem er fuglaskoðun, útsýnisskoðun eða stjörnuskoðun eða einfaldlega glæsilegt stofustáss!

Sjónaukinn er að öllu leyti úr áli þar sem öll smáatriði eru úthugsuð. Rauða Rosso Scuderia málningin er einnig sú sama og prýðir kappakstursbílana.

Sjónaukinn er sáraeinfaldur í notkun. Það eina sem þarf er hefðbundinn ljósmyndaþrífótur. Með sjónaukanum fylgir súmaugngler sem gefur 25x til 50x stækkun sem er kjörin í flest. Hægt er að skipta um augngler í sjónaukanum og fá þannig enn meiri stækkun sem er gott ef nota á sjónaukann í stjörnuskoðun. Ennfremur er hægt að fjarlægja prismað af og festa í staðinn fjölmarga aðra fylgihluti eins og til dæmis myndavélatengi fyrir stafrænar SLR myndavélar (DSLR). Þannig getur þú breytt sjónaukanum í framúrskarandi góða 388mm (f/5,9) ljósmyndalinsu. Sjálfur fókusinn er list út af fyrir sig.

Með sjónaukanum fylgir glæsilegur bakpoki sem hægt er að taka með sér í flugvél heimsálfa á milli. Þannig getur þú ferðast með gripinn um allan heim án þess að hann verði fyrir hnjaski.

  • Linsur:
  • Ljósop: 66mm
  • Brennivídd: 388mm
  • Brennihlutfall: f/5,9
  • Lengd: 280mm
  • Þyngd: 1,6 kg

Hvað fylgir með í pakkanum?

  • 25x til 50x súmaugngler (40 til 60 gráðu sjónsvið)
  • Prisma
  • Burðartaska (bakpoki)
  • Fimm ára ábyrgð

Þarf ég eitthvað fleira?

  

William Optics UWAN augngler

Hágæða augngler með 82° sýndarsjónsviði og hnífskarpri mynd.

Sjá nánar.

  

Myndir


Sjónaukinn fæst hjá:
Sjonaukar.is
Geisli - Vestmannaeyjum(Sími: 481-3333)
Petromyndir - Akureyri(Sími: 462-3520)
Framköllunarþjónustan - Borgarnesi(Sími: 437-1055)
K.F Skagfirðinga - Sauðarkrók(Sími: 455-4500)
Þristur - Ísafirði(Sími: 456-4751)
Húsgagnaval - Höfn(Sími: 478-2535)