Megrez 72 Doublet APO

Athugaðu, opna í nýjum glugga. Skoða sem PDF skjalPrenta útSenda hlekk á þessa síðu til vinar

Verð á pakka kr.: Hafðu samband fyrir besta verð

Frábær lithreinn linsusjónauki með hágæða japönskum ED-linsum. Sjónaukinn er mjög meðfærilegur og er hægt að nota í stjörnuskoðun, en einnig fugla- og útsýnisskoðun. Þar að auki getur sjónaukinn nýst sem ljósmyndalinsa með viðeigandi millistykkjum. Sjálfur er sjónaukinn að öllu leyti úr hertu áli.

Fókusinn er silkimjúkur 1:10 og hægt að snúa 360°, nauðsynlegt í stjörnu- og fuglaskoðun. Með sjónaukanum fylgir annað hvort prisma (í fugla- og útsýnisskoðunina) eða skáspegill (í stjörnuskoðunina) en taka þarf fram hvort þú vilt, 20mm SWAN augngler sem gefur um 22x stækkun og BTR-188 þrífótur. Er fáanlegur bæði blár og hvítur. Taska fylgir.

  • Linsur: Japanskar Ohara ED linsur
  • Ljósop: 72mm
  • Brennivídd: 432mm
  • Brennihlutfall: f/6
  • Lengd: 300mm
  • Þyngd: 2,2 kg

Hvað er innifalið?

  • Burðartaska (bakpoki)
  • Prisma eða skáspegill (velja þarf hvort)
  • 20mm SWAN augngler (22x)
  • BTR-188 þrífótur
  • Fimm ára ábyrgð

Þarf ég eitthvað fleira?

 

Myndir