AstroMaster 90AZ

Athugaðu, opna í nýjum glugga. Skoða sem PDF skjalPrenta útSenda hlekk á þessa síðu til vinar

Verð kr.: 34.900,- (Uppseldur)

Fínn byrjandasjónauki sem er bæði einfaldur í uppsetningu og meðfærilegur. Hægt að nota sem útsýnissjónauka líka þótt hann sé fyrst og fremst hugsaður í stjörnuskoðun. 

Með þessum fína byrjandasjónauka sérðu bjartar og skarpar myndir af tunglinu og reikistjörnunum. Auðvelt er að sjá tungl og skýjabelti Júpíters og stórbrotið hringakerfi Satúrnusar. AstroMaster 90AZ hefur það fram yfir AstroMaster 70AZ og 70EQ að vera með stærra ljósop, sem þýðir að hann safnar meira ljósi og sýnir fínni smáatriði og daufari fyrirbæri.

Ef þú vilt skoða djúpfyrirbæri eins og stjörnuþokur, stjörnuþyrpingar og vetrarbrautir mælum við frekar með stærri spegilsjónaukum, svo sem AstroMaster 113EQ, NexStar 114 eða 130 SLT. Bestu kostirnir eru SkyQuest XT4.5, SkyQuest XT6 eða 8 sem fá okkur mestu meðmæli.

  • Tegund: Linsusjónauki
  • Stæði: Lóðstillt (AZ)
  • Ljósop: 90mm
  • Brennivídd: 1000mm
  • Brennihlutfall: f/11
  • Mesta gagnlega stækkun: 180x
  • Fugla- og útsýnisskoðun: Já
  • Stjörnuljósmyndun: Nei

Hvað fylgir með í pakkanum?

  • Allt sem þú sérð á myndinni, það er
  • Þrífótur
  • 20mm augngler (50x stækkun)
  • 10mm augngler (100x stækkun)
  • Miðari
  • Tveggja ára ábyrgð

Þarf ég eitthvað fleira?

Mjög mikilvægt er að eignast góða fylgihluti með AstroMaster 90AZ til að fá sem mest út úr sjónaukanum. Góðir fylgihlutir gera nefnilega góðan sjónauka enn betri og stjörnuskoðunina ánægjulegri. 

Hér eru nokkrir fylgihlutir sem við mælum sérstaklega með fyrir AstroMaster 90AZ.

Námskeið í stjörnuskoðun

Það er fátt gagnlegra en að njóta leiðsagnar reyndra stjörnuáhugamanna um leyndardóma himingeimsins. Þess vegna mælum við sérstaklega með því að þú skráir þig á krakkanámskeið Stjörnuskoðunarfélags Seltjarnarness og Stjörnufræðivefsins. Á námskeiðinu verða krakkar og foreldrar þeirra frædd um stjörnuhiminninn, tunglið og reikistjörnurnar. Ennfremur býðst þeim sem sækja námskeiðið að koma í stjörnuskoðun með leiðbeinendum. Námskeiðið kostar aðeins 5000 fyrir foreldri og barn saman!

Skráning er á vefsíðu Stjörnuskoðunarfélagsins www.astro.is.

Augngler

Augngler eru langmikilvægustu fylgihlutir stjörnusjónauka. Þau ráða bæði stækkun og sjónsviði hans og það hvort myndin lítur vel út eða ekki. Við mælum með 32mm Sirius Plössl augngleri fyrir Orion Observer 60. Það gefur 22x stækkun. Auk þess mælum við með einu í viðbót, til dæmis 7,5mm sem gefur 93x stækkun.

Sjá nánar