Áhugaverðar Jólagjafir 2011
Þekking skiptir okkur öll máli, að efla áhuga fólks og barna á vísindum kemur okkur öllum til góða.
Stjörnusjónaukar
SkyWatcher Heritage
![]() |
| Verð 13.990.- |
Góður stjörnusjónauki fyrir unga sem aldna sem vilja sjá aðeins meira en Galíleósjónaukinn sýnir. Sérstaklega meðfærilegur 76mm spegilsjónauki á Dobsonstæði sem er sáraeinfaldur í notkun. Með sjónaukanum getur þú skoðað gíga og fjöll á tunglinu, Galíleótunglin við Júpíter og hringa Satúrnusar auk fjölda annarra forvitnilega fyrirbæra himingeimsins. Hafðu þó í huga að þú getur ekki notað hann sem útsýnissjónauka að degi til. Með sjónaukanum fylgir:
- 5x24 leitarsjónauki
- 25mm augngler (12x stækkun)
- 10mm augngler (30x stækkun)
Stjörnufræðivefurinn og Stjörnuskoðunarfélag Seltjarnarness mæla heilshugar með þessum fína stjörnusjónauka. Við mælum líka með því að þú eignist eitt annað augngler með honum til að auka stækkunina, t.d. 6mm augngler sem gefur 50x stækkun.
Hvar fæst hann? Sjónaukar.is , Sjónvarpsmiðstöðin
Astrolux 70mm
![]() |
| Verð 16.990.- |
Frábær spegilsjónauki fyrir byrjendur sem vilja hafa einfaldleika og meðfærileika í fyrrirúmi. Auðvelt að sjá reikistjörnurnar vel, t.d. hringa Satúrnusar og skýjabelti og Galíleótungl Júpíters en líka gígana á tunglinu og fjarlægari fyrirbæri eins og geimþokur, stjörnuþyrpingar og vetrarbrautir! Fær meðmæli stjörnuáhugafólks.
SkyWatcher Astrolux 76mm sjónaukinn hefur nokkra kosti umfram t.d. 70mm linsusjónauka. Hann er meðfærilegri og einfaldari í notkun. Hann hefur víðara sjónsvið og stærra ljósop. Auk þess fylgja honum fín augngler og góður leitarsjónauki.
Stjörnufræðivefurinn og Stjörnuskoðunarfélag Seltjarnarness mæla sérstaklega með þessum fína byrjendasjónauka. Góðir fylgihlutir gera góðan sjónauka enn betri. Það eru fyrst og síðast augngler sem þú ættir að fá þér með sjónaukanum því þau ráða stækkuninni.
- Tegund: Newton spegilsjónauki
- Ljósop: 76mm
- Brennivídd: 700mm (f/9,2)
- Stækkun (fylgir): 28x, 56x, 70x og 140x
- Stækkunarmörk: 152x
- Augngler sem fylgja: 10mm og 25mm
- 2x Barlow linsa (tvöfaldar stækkunina)
- 6x24 leitarsjónauki
- Lóðstillt stæði
- Þrífótur úr áli
Hvar fæst hann? Sjónaukar.is , Sjónvarpsmiðstöðin
SkyWatcher Explorer-130
![]() |
| Verð 39.900.- |
Mjög góður byrjendasjónauki sem er nokkuð einfaldur í uppsetningu og mjög meðfærilegur. Þessi sjónauki hentar vel fullorðnum áhugamönnum en fyrir yngsta áhugafólkið ættir þú tvímælalaust að skoða SkyWatcher Heritage 76 eða SkyWatcher Skyliner 150P Dobsonsjónauka.
SkyWatcher Explorer-130 er mjög góður til að skoða tunglið vel, reikistjörnur og djúpfyrirbæri. Með sjónaukanum er auðvelt að sjá tungl og skýjabelti Júpíters og hringa Satúrnusar.
Með sjónaukanum fylgja tvö góð augngler sem gefa 36x og 90x stækkun, Barlow linsa og góður miðari.
Við mælum með því að fólk kaupi eitt annað augngler til viðbótar, t.d. 15mm eða 12,5mm auk tunglsíu.
Hvar fæst hann? Sjónaukar.is , Sjónvarpsmiðstöðin
SkyWatcher Skyliner 150p
![]() |
| Verð 49.900.- |
Frábær stjörnusjónauki fyrir byrjendur sér í lagi unga stjörnuáhugamenn. Sjónaukinn er sáraeinfaldur í notkun og ótrúlega meðfærilegur, jafnvel þótt hann hafi 6 tommu ljósop. Fókusinn er einfaldur og þægilegur sem og leitarsjónaukinn sem er mjög góður. Sjónaukinn er mjög stöðugur og hægt er að sitja við hann þegar verið er að skoða himininn.
Með þessum frábæra sjónauka sérðu bjartar og skarpar myndir af tunglinu og reikistjörnunum. Auðvelt er að sjá tungl og skýjabelti Júpíters, hringakerfi Satúrnusar og fín smáatriði á Mars á borð við pólhettur, ský og dökk- og ljósleit svæði.
Djúpfyrirbæri eins og stjörnuþokur, stjörnuþyrpingar og vetrarbrautir sjást vel með þessum sjónauka þar sem hann hefur nokkuð stórt ljósop.
Með sjónaukanum fylgja tvö augngler sem gefa 48x og 120x stækkun. Við mælum með því að þú kaupir eitt annað augngler til viðbótar, t.d. 15mm eða 12,5mm auk tunglsíu.
Stjörnuskoðunarfélag Seltjarnarness og Stjörnufræðivefurinn mæla sérstaklega með þessum frábæra byrjendasjónauka.
Þetta er besti byrjendasjónaukinn sem völ er á.
Hvar fæst hann? Sjónaukar.is , Sjónvarpsmiðstöðin
Handsmásjár
MM-640
![]() |
| Verð 9.990.- |
zPix™ - MM-640
Þessi handsmásjár gerir þér kleift að skoða alla þessa örsmáu hluti í kringum þig í tölvuskjánum þínum, ásamt því að taka ljósmyndir og stutt myndband. Hún tengist tölvunni í gegnum USB tengi. Smásjárinn er frábær til að skoða hluti eins og mynt, frímerki, steina, fornminjar, skordýr, plöntur, mismunandi efni, húð, hár, sýkla,og marga aðra hluti. Tekur myndir í 640x480 díla upplausn. Stækkun 26x og allt að 130x.
Marg verðlaunað, meðal annars fyrir besta barnavaran og besta kennsluvaran.
Hvar fæst? Sjónaukar.is , Tölvulistinn
MM-740
![]() |
| Verð 12.990.- |
Handsmásjáin er afar gagnleg stafræn smásjá með fjölda nýstárlegra möguleika, hingað til óhugsandi í hefðbundnum smásjám. Handsmásjána má tengist við tölvu með USB tengi, en það leyfir upptöku kyrrmynda, tímaskeiðs-mynda (time-lapse) og jafnvel kvikmynda. Ekki er aðeins auðvelt að skoða myndefnið grannt beint á tölvuskjánum, heldur má einnig vista það og jafnvel senda í vefpósti.
Smásjáin nýtist almennum áhugamönnum jafnt sem kennsluaðilum. Smásjáin stækkar á bilinu 26-130X. Hvít LED ljós eru innbyggð en þau lýsa upp myndefnið.
Smásjáin gefur fólki góðan aðgang að heimi örsmæðar. Stækkun allt að 130X gefur ótrúlega innsýn í veröld sem okkur er alla jafna hulin. Forvitnilegur heimur ördýraríkis má skoða grannt í tölvuskjánum.
Smásjáin nýtist til skoðunar á fjölbreytilegustu hlutum, hér eru nokkur dæmi:
Ríki náttúrunnar: Skordýr, plöntur og plöntuvefir, steingervingar og bergveftur, málmblöndur og eiginleikar mismunandi efna
Manngerðir hlutir: Fornmunir, slegin mynt, frímerki, sýnishorn á litskyggnum, húðar, hárs, sýkla, svo fátt eitt sé nefnt. Einnig getur þú skoðað og rannsakað og stækkað sýnin í skjánum hjá þér. Notaðu bara ímyndunaraflið!
Handsmásjá – Helstu upplýsingar
- Stækkun 26x og allt að130x
- 1.3 milljón díla stafræn myndavél fyrir myndatöku og video
- LED lýsing
- Ljósmynda forrit
- USB 2.0 tenging
- Standur til að halda smásjóni stöðugri
- Stærð - 108 mm x 32 mm
- Þyngt - 113g
Hvar fæst? Sjónaukar.is , Tölvulistinn









